
Þetta er Sonja Aldén
Sonja þessi er fræg í Svíþjóð, á svipuðum stalli og Carola og Charlotte Perelli. Hún er bara betri sönkona en þær báðar. Eins og Carola og hin áður brjóstgóða Perelli* hefur Sonja stigið inn í sviðsljósið í kringum Eurovision keppnina.

Þetta er mynd af Charlotte Perelli
*Mörgum íslendingnum er Charlotta í fersku minni er hún marði sigur á íslensku söngnkonunni Selmu Björnsdóttur. Færustu Eurovisionfræðingar fullyrða að stóru brjóstin hennar Charlottu hafi vegið þungt á lokasprettinum.
Sonja varð í öðru sæti í undankeppninni 2007 en náið að lauma einum eyrnaormi inn fyrir hlustir sænsku þjóðarinnar. Síðan þá hefur hún notið mikilla vinsælda meðal sænskra. Hérna má sjá Sonju syngja orminn "For allt du finns" til sænskra. það hefur sjálfsagt verið blendnar tilfinningar hjá hinni skapmiklu Charlottu að vita það að kvöldið sem hún vann undankeppnina 2008 var lag Sonju (sem varð í öðru sæti 2007) á toppi vinsældarlistanna.
Þegar ég var að vaska upp í morgun með Sonju í útvarpinu þá var eins og ormurinn náði á mér heljartökum. Ég varð eiginlega ekki með sjálfum mér og var algerlega á valdi tónlistarinnar. Ég er maður hrifnæmur og lendi stundum í þessu. Oftast með gott electro í botni eða með Rachmaninoff í einhverri geðveiki*. Ég settist við tölvuna og skrifaði Valdísi Gunnarsdóttur útvarpsmanni bréf. Ég hlusta alltaf á þáttinn hennar á laugardögum og ég er viss um að hún fílar hana Sonju Aldén. Bréfið var bara nokkuð blátt áfram og ég vona að hún lesið það. Meðfylgjandi sendi henni líka MP3 fælinn með orminum með ósk um að hún hleypti honum í hlustir Íslendinga. -Kannski að hún sleppi honum út?
*það er misskilningur að klassísk tónlist sé eitthvað laus við punkelement
0 comments:
Sendu inn athugasemd