Svíar eru sniðugir. Þeir eru almennt sparsamir og nota eiginlega aldrei kreditkort. Reiðufé er algengasti greiðslumiðillinn og þeir taka með sér nesti í vinnuna. Þetta er til fyrirmyndar. Á vissum sviðum hafa þeir reyndar farið fram úr skynseminni sinni eins og t.d varðandi félagslega þjónustu. Hérna eru háir skattar sem allir fá svo til baka í formi styrkja. Glæpamenn eru í afar góðum málum hérna að lokinni fangelsisvist því þeir fá bætur frá ríkinu, frítt húsnæði og í rauninni allt sem þeir biðja um á meðan hinn duglegi Ole Svenson fær ekki neitt. Af þessari stuttu dvöl minni hérna sýnist mér að það sem Svíar taka sér fyri r hendur gera þeir af myndarskap og af alvöru. Þeir eru t.d staðráðnir í því að eyða kynjamisrétti úr samfélaginu sínu og eru með massíva kynjakvóta á öllum mögulegum sviðum. Ég held að sænskir meti það einfaldlega þannig að þótt að kynjakvótar séu oft og tíðum óréttlátir þá eru þeir skárri lausn en að hafa kynjamisrétti grasserandi í samfélaginu.
Það sem mér finnst til hvað mestrar eftirbreytni er þó hin ókomplexaða skynsemi sem stundum birtist. Í hverfinu mínu er t.d upplýsingaspjald fyrir íbúana þar sem allskonar upplýsingaum er komið á framfæri. Á þessu spjaldi er Niklar að óska eftir að vera samferða einhverjum í vinnuna.

Þetta þykir mér sniðugt.
0 comments:
Sendu inn athugasemd