miðvikudagur, 23. apríl 2008

Sófasett og dádýr

Við fjölskyldan örkuðum af stað í nýja bílnum upp í Farum sem er svona 10 km frá Gautaborg til að skoða sófasettið ljóta. Eftir að hafa tekið vitlausa beygju af hraðbautinni og týnst í smá stund komum við loks á afangastað. Farum er smábær sem er byggður í nokkuð hæðóttu landi. Við vorum aðeins á undan áætlun og keyrðum því um stund um hæðótta byggðina. Okkur til mikillar undrunar sáum við DÁDÝR sem var að spóka sig í garði einum sem var þétt upp við skóg. Þetta mun ekki vera óalgeng sjón en dádýr og elgir munu hafast við í skógunum í kringum Gautaborg.

Loksins þegar ég fékk að berja sófasettið augum blöstu við plussklædd vonbrigði. Sófasettið var í raun agnarsmátt en á myndinni virkað það hrikalegt. ég ákvað að sleppa þessum kaupum enda var allt transport á settinu vandkvæðum bundið. Gautaborgarar þekka ekki til sendibíla eða greiðabíla. Einu sendibílarnir eru risastórir og notaðir til reglulegra flutinga með vörur milli staða. Við fórum því í eina af risastóru verslunarmiðstöðvum Gauta og festum okkur leðursófa sem ég held að sé bara ágætur. Hann kemur í vikunni. Svíar þekkja heldur ekki þessa "strax-áráttu" Íslendingsins. Hlutirnir taka sinn tíma. Ég er t.d búin að bíða í rúmar 2 vikur eftir netsambandi og sjónvarpssambandi. Sennilega á þetta rót í stærð samfélagsins hérna en rúmir 700 þúsund íbúar tilheyra Gautaborgarsvæðinu.

Ég reit eina vantrúargrein í morgun og fjallar sú um barnatrú og tilraun til greiningar á fyrirbærinu. Ég vona að hún birtist sem fyrst og að ég fái einhver viðbrögð við henni. Annars á fæðingaroflofs-fríið ágætlega við mig. Þetta er nú engin ferð í skemmtigarðinum þótt við feðgar förum stundum út á róló en það er gaman að kynnast strákunum mínum svona í návígi. Bessi minn er mikill orkubolti og synd að því að við höfum ekki komist út meira (vegna snjókomu!) en bragarbót verður unnin á því máli nú þegar vorar. Leó litli er allt öðruvísi. Rósemin uppmáluð. Maður tekur varla eftir krílinu. Það heyrist eiginlega ekkert í honum nema stöku "ga-ga" þegar hann er í stuði. Furðulegt hvað bræðurnir eru ólíkir.

0 comments: