miðvikudagur, 23. apríl 2008

Stórar stórutær

Loksins loksins! Netið hérna á Ormabekksgötunni er komið í eðlilegt horf. Loksins er kominn þráðlaus router og ég er í stöðugu og reglulegu sambandi. Hingað til hef ég ég stolist inn á netið hjá nágrönnum mínum en það samband er hvort í senn stöpult og ótryggt. Ég hef t.d ekki þorða ástunda bankaviðskipti. Loksins loksins get ég komið mér fyrir á skrifborðinu mínu innan um allt tölvustöffið mitt (flottan skjá, lyklaborð, flotta mús, utanáliggjandi harðandisk....) og verið í sambandi við nördinn í mér.

Annars tók ég eftir sérkennilegri staðreynd varaðandi syni mína tvo. Þeir skarta einhverjum stærstu stórutám sem ég hef séð á smábörnum. Stóratáin á þeim er eiginlega jafn stór og allar hinar litlu til samans. Ég held að þetta sé gott og vona innilega að sporin sem þeir stíga í framtíðinni muni forða þeim frá glapstigu. Stórar tær veita góða spyrnu og bæta jafnvægi.

Ég sendi inn mynd af þessum stóru stóru tám drengjanna minna þegar ég læri loksins að setja inn myndir á þetta blogg.






0 comments: