Fyrir skömmu átti Bjarni Harðarsson alþingismaður samtal við Matta formann Vantrúar í óðgeðfeldur viðbyggingunni við Alþingishúsið. Þar skröfuðu hann og Matti um væntanlegar breytingar á grunnskólalögunum. Allt um það hér. Því miður þá virðist sem þingmaðurinn sé annaðhvort vangefinn eða ferlega óheiðarlegur því hann skrifar pistil um breytingarnar á grunnskólalögunum á blogginu sínu. Þar ítrekar hann rangfærslur um að andstæðingar orðalagsins um ”kristilegan menningararf” séu andstæðigar kristinfræðikennslu! Matti undraðist viðbrögð Bjarna og telur útilokað að það sem þeim fór í milli gæti flokkast sem misskilnngur. -Bjarni er vísvitandi að ljúga!Staðreyndin er sú að Bjarni veit mæta vel að trúleysingjar (og aðrir andstæðingar samblástur trúar og laga) eru ekkert andstæðingar kristinfræðikennslu,en kýs samt að halda í frammi þessum lygum. Nokkur atriði koma til greina á útskýringu á þessum svívirðilega lygavaðli.
1) Bjarni hefur verið undir áhrifum lyfja ellegar áfengis þegar hann reit þennan
lygaþvætting.
2) Bjarni gengur ekki heill til skógar.
3) Bjarni er tækifærissinnaður lygari í örvæntingarfullri vinsældaleit.
Ég hallast annaðhvort að lið 2 eða 3. Þar sem liður 3 er tæmandi lýsing yfir Framsóknarmann er sú skýring sennilega sú rétta.
Bjarni óttast mjög að ef ríkiskirkjan missit ítök sín muni hér grassaera öfgatrú. Það er ástæaðan sem hann gefur upp sem stuðing við samblástur trúar og laga sem í landinu gilda.
Bjarni á í engum vandræðum með að spyrða saman trú og lögum, en í flestum löndum þykir slíkt fásinna og brot á megninprinsippi sem Bjarni ætti að kannasti við sem þingmaður og bókanörd.
Með væntanlegum (ó)lögum er EINMITT verið að færa Ísland nær múllunum í Íran og ósvífnustu sjónvarpspredikurum Bandaríkjanna!. Það er beinlínis verið að ympra á því að skólastarf skuli mótað eftir trúararfleið einnar kirkjudeildar.
Mér sýnist Bjarni vera með allt niðrum þigí þessu máli. það er ekki heil brú í þessari afleiðslu hjá honum. Sömu rökin voru notuð þegar bjór var bannaður á Íslandi. (lesendur! Hugsið þetta um stund! Bjór var bannaður en aðrir áfengir drykkir leyfðir) Rökin fyrir bjórbanninu voru þau að ella yrðu allir Íslendingar alkar. Rök Bjarna fyrir samblæstri ríkis og trúar eru þau að án ríkiskirkju færu kjósendur á trúarflipp með tilheyrandi jesúgauli, oblátuáti og myrrubrennum.
-Eigum við að leyfa órétt til þess að hafa hemil á meintu trúarflippi Íslendingar (sem á sér í rauninn bara sér stoð í hugarórum þingmannsins úr suðurlandskjördæmi) Hvurlags pólitíkus ert Bjarni eiginlega? Dettur honum ekki í hug að taka út þennan órétt í heilu lagi? Er hann ekki að kasta barninu út með baðvatninu?
Misskilningurinn sem Bjarni vitnar svo fjálglega í fyrirsögn bloggsins síns er annar en Bjarni gefur í skyn. Bjarni Harðarson misskilur orðið réttlæti.
0 comments:
Sendu inn athugasemd