Björn Ingi var vonarstjarna Framsóknarflokksins og bar höfuð og herðar yfir samflokksmenn sína hvar sem á var litið. Augljóslega klár, fyndinn, vel ritfær og snillingur í að koma fram í fjölmiðlum. Ég hef aldreigi séð áður slíkan mann síðan ég fór að fylgjast með stjórmálum fyrir 25 árum síðan. Hann rakst illa í sínum eigin flokki og var að lokum bolað í burtu. Sestur í ritstjórastól á Fréttablaðinu og ritar þessar líka fínu greinar. Ég er eins og gengur ekkert alltaf sammála Birni en stundum hittir hann naglann algerlega á höfuðið. Nú berast þær fréttir (lesist: slúður) að hann hafi átt þátt í ótímabæru fráhvarfi Björgvins Guðmundssonar frá Fréttablaðinu. Félagar hans úr fráfarandi meirihluta Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks lögðu beinlínis hatur á Björn Inga og sagan segir að Björn Bjarnason missi máttinn í löngutöng vinstrihandar þegar nafn Björns ber á góma. Þrátt fyrir þetta hvítglóandi hatur, tóks Birni að hætta sem borgarfulltrúi með reisn. Hélt góða veislu og kvaddi samherja jafnt sem andstæðinga sína á innilegan og kurteislegan hátt í Höfða. Björn Ingi á þetta sem sagt til, að ná að sætta andstæðinga sína við sjálfan sig og koma út sem vinner úr ómögulegustu stöðum. Þessi hæfileiki Björns er stórmerkilegur. Hann virðist eiga afar auðveld með að koma sér í klípu og um leið auðvelt með að koma sér úr téðri klípu. -Draumahæfileiki stjórnmálamanns?...
Sumir hafa sagt að erfitt sé fyrir Björn að vinna teymisvinnu eða í umhverfi þar sem hann er ekki í aðalhlutverki. Meðan aðrir hafa sagt að Björn sé einfaldlega óþolandi náungi. Það kæmi mér reyndar á óvart miðað við að Björn virkar afar geðfeldur á skjánum eða sem penni. Ég skil ekki hvernig Björn virðist alltaf rekast á samherja sína eða hvað það er sem veldur því að hann er svona umdeildur. -Ég bara fatta það ekki. Til þess að fá botn í það mál, þyrfti ég sennilega að kynnast kauða, drekka með honum nokkra espresso og ræða heimsspeki.
Nú ætla ég að koma með ráð fyrir Björn Inga. Alveg ókeypis og ég fer ekki fram á neinn bitling fyrir vikið. Ekki stjórnarformennsku í Faxaflóahöfnum eða verkefnastjóra á skrifstofu í einhverju aumu apparati. -Nei. Þetta ráð er ókeypis.
Framsóknarflokkurinn er í dag dauður. Fylgið liggur í
4% og flokkurinn er illa mannaður frá stafni til stjóra. Formaðurinn er beinlínis hlægilegur og vekur kátínu meðal landsmanna í hvert skipti sem hann tjáir sig. Meðreiðarsveinar formannsins eru hæfileikalaus biðraðaséní sem kunna ekkert, geta ekkert og vilja ekkert nema naga í hælana hvorir á öðrum. Framsóknarflokkurinn er sannarlega í útrýmingarhættu. Sem dæmi um það þá flokkaði WWF (World Wildlife Foundation) ástand flokksins sem “critical” í nýlegri skýrslu samtakanna.
Flokkurinn er eins og illa hirtur akur sem þarf að yrkja. Grasið í órækt, njólar stinga sér upp við skurðbarma, hvannir vaxa viltfar, puntstrá, sóleyjar, fíflar og fífl eru á arkrinum engum til gagns og mýrarþekja hefur nú þakið meira en helming af stykkinu með tilheyrandi vaðfuglum og lítilli kríubyggð. Gömul múgvinnsluvél speglast í ryðrauðum polli. Enginn nennir að sinna garðinum. Við túnfótinn stendur Björn Ingi með skóflu í hægri hendi og labtop í þeirri vinstri. Hvað á hann að gera? Á hann að halda áfram að vera ritstjóri eða á hann að bjarga stykkinu? Ef setning Shakespares, ”að vera eða ekki vera, þar er efinn”á við einhvern þá á hún við Björn Inga Hrafnsson. Hann getur tekið þennan flokk og rifið hann upp á rassgatinu ef hann vill. -Ef hann nennir. –Ef hann þorir.
Ég er viss um að Björn Ingi geti orðið einn af stóru nöfnunum í komandi Íslandssögu. Hann hefur allt í þetta og ef hann næði að tækla brestina sína þá er ég sannfærður um að það væri ekki bara heillaspor fyrir hann sjálfan heldur einnig samherja hans og andstæðinga.

0 comments:
Sendu inn athugasemd