ítið gaman að verða 39 ára því þá gat ég sett mér takmörk fyrir það sem mig langaði að klara fyrir fertugt. Ég ákvað t.d að ég ætla að skrifa bók. Ég sagði honum Huldari Breiðfjörð vini minum frá þessari hugmynd og hann gaf mér nokkur góð ráð, enda frábær penni og gáfumaður. Hann sagði mér í framhjáhlaupi að þegar hann færi út að skemmta sér þá kæmu að honum 10 manns á kvöldi sem allir voru með bók í smíðum. Ferlega frábært þetta. Allir Íslendingar ætla að skrifa "bókina". Bókina sína. Ég ætla að byrja að minni bráðlega. þetta verður glæpasaga um drullusokk og klámfíkil. Hérna til hægri er mynd af Hulla á Patreksfirði.
Ástæða þessa titils er sú að ég var að taka til í garðinum okkar eftir daginn. ég var með bullandi Electro í ipodinum og var alveg að fíla mig í ræmur. Ekkert jafnast á við gott stuff frá Pryda kallinum. En þá rann upp fyrir mér ljós. Hérna var ég í millistéttarpakka dauðans, út í garði í hnésíðum hermannabuxum, í stuttermabol með mynd af Jesús að raka sig (Jesus Shaves), og með electro í botni, - Að taka til dúkkur, bíla og sundbolta. -Svolítið sérkennilegt.
Ég hef aldrei getað hlustað á Bítlana eða Rolling Stóns eða hvað þetta rusl nú allt heitir. Bob Dylan er eitur í mínum eyrum. Svo að ekki sé talað um Leónard Kóen. Ég þoli ekki þetta jarm undir óvönduðu gítargutli. Eina rokkið sem ég get hlustað á er með KISS og nokkur lög með Pistols, Möntley og AC/DC.
Ég man það eins og það hefði gerst í gær þegar ég heyrði loksins tónlist sem ég fílaði. Ég hafði (ásamt allri minni kynslóð) verið píndur að hlusta á Duran og Wham. Mér leið satt best að segja eins og (tónlistarlegum) homma sem veit að það er eitthvað að sér í uppvextinum. Það var eitthvað sem vantaði. Þegar ég fór svo á Borgina þar sem Arnór heitinn var a
ð DJ-a, varð ég fyrir hnaski sem ég hef ekki ennþá jafnað mig af. Þá hét stöffið Acid-House og ég fíla þetta stöff ennþá í botn. Ég hef eiginlega ekki getað hlustað á neitt annað en raftónlist og mælikvarðinn á minn á tónist er að ef það er gítar í laginu þá er það lélegt. Ég kaupi bara tónlist frá Beatport.com sem er yyyyndisleg síða....
En þar sem ég er að verða 40 ára tók ég eina bestu ákvörðun sem ég hef tekið á þessum tæpu 40 árum. Ég ætla ekki að lifa eftir einhverri formúlu eða eftir félagsþrýsingi. Ég ætla að lifa eftir mínu höfði. Restin verður alveg frábær og ég ætla að breyta og bæta fyrir krakkana mína. Mér er skítsama þótt fólk um fertugt sé orðið ”ráðsett”. Ég ætla ekki að gera það. Ég gæti það ekki þótt ég reyndi. Ef einhver skammast í mér fyrir að vera ekki með bindi þá mun ég svara viðkomandi á þennan hátt:
-Shove it up your fucking Volvo...... and -Fuck it, fuck the system og fuck the fucking þjóðkirkja...
1 comments:
Aldeilis prýðilegt Teitur. Gott að sjá að maður er ekki einn.
Sendu inn athugasemd