föstudagur, 23. maí 2008

Frægasti sem ég hef séð V

Einu sinni var á seinnihluta 20 aldar drakk ég áfengi. Í eitt skiptið þegar ég hafði drukkið nokkrar patrónur af bjór, og var staddur á hinum goðsagnakennda Rosenberg, sá ég Björk. Ég var ásamt öllum Íslendingum haldin nettri minnimáttarkennd gagnvart útlöndum og deildi skoðun margra blaðamanna á að ”árangur Bjarkar væri ótrúlegur”. Þessir sömu blaðamenn höfðu reyndar aldrei talað um Björk, Kuklið eða Sykurmolana öðruvísi en eins og e-a póstmóderníska rugludalla. –En það er önnur saga. Ég fílaði aldrei Kuklið en Sykurmolarnir voru sætir.

Þar sem ég var þarna og starði á Björk vatt hún sér að mér og reyndi massann við mig!. -Nei. Hún gerði það ekki, en það hefið verið frábært : ) enda Björk sexy as hell þetta kvöld. Ég pikkaði eitthvað í bakið á henni og byrjaði að röfla við hana. Hún tók þvi bara vel og við áttum stutt spjall saman. Rósenberg er án efa skemmtilegasti næturklúbbur á 20. öldinni á Íslandi. Það var svo helvíti gott vibe þarna í kjallaranum. Ný tónlist, frábært fólk og ég man aldrei eftir slagsmálum eða leiðindum. Ég og vinir mínir höfðum einhverskonar súperaðgang að Rósenberg og gátum farið og komið að vild. Einu sinni þegar ég ásamt vini mínum komum inn í Rósenberg eftir lokin eldsnemma á Sunnudegi að ná í jakka sem einhver hafði gleymt, var ég vitni að ógleymanlegri uppákomu. Niðri úr kjallaranum bárust háværir tónar. Það var niðdimmt og enginn í húsinu. Þegar við komum inn í aðalrýmið sáum við ekki handa okkar skil fyrir myrkri. Eina ljóstýran var frá DJ búrinu. Þar inni var Maggi Legó að spila. Hann hafði bara haldið áfram að spila þrátt fyrir að staðnum hafi verið lokað og spilaði nú bara fyrir sjálfan sig. Ótrúlega flott móment. Við ákváðum ekkert að trufla hann...

Ég verð að bæta því inn að GusGus er langbesta íslenska bandið í dag og í gær og alltaf og eilíflega. Nýja platan er ótrúlega sterk. Ég fylgist vel með helstu straumum í House/techno/Electro tónlíst og það kemur mér á óvart hversu mikil áhrif GusGus hefur í dag. Öllu stóru nöfnin hafa mixað stöff frá GusGus... lagið Moss af nýju plötunni er bara klikkað. Kemur mér alltaf í fíling. Bessi sonur minn (2 ára) fer alltaf að dansa þegar ég spila Moss....

0 comments: