miðvikudagur, 28. maí 2008

Gasmaðurinn og hálstaksmaðurinn

Starf lögreglumannsns er sennilega afar krefjandi. Ég gæti ímyndað mér að það sé frekar pirrandi að rökræða við fyllibyttur 90% af timanum sínum í vinnunni. Lögreglan hefur komist í kastljósið að undanförnu vegna mótmæla vörubílstjóra og núna síðast þegar lögreglumaður virðist hafa snappað á unglingspilt sem var víst al-saklaus. Þessi árás lögreglumannsins náðist á vídeó sem gengur ljósum logum um íslenska netheima. Augjóst er á vídeóinu að árás lögreglumannsins var tilefnislaus með öllu. Það er óhuggulegt að vita til þess að maður í svona mikilvægu opinberu starfi bregðist svona við aðstæðum sem eru í rauninni léttvægar. Vonandi verður málið rannsakað í kjölinn og sekt eða sýkna ákveðinn hið fyrsta.

Hinsvegar hefur Gasmaðurinn svokallaði verið mikið milli tannana á fólki. Gasmaðurinn vakti kátínu í samfélaginu og hringitónn með öskir gasmannsins varð vinsæl meðal frómra jafnt sem fábjána. Hitt gleymist í flissi hinna menningarsnauðu, að gasmaðurinn gerði allt rétt! Hann varaði fólk við áður en hann sprautaði gasinu yfir lýðinn. Dettur einhverju í hug að betra hefði verið að hann hefði sprautað óforvarendis á mótmælendur! Ég sá ekki betur en Gasmaðurinn væri búin að vara við að hann myndi sprauta gasinu, -ítrekað.
Ég tæki hatt minn ofan fyrir Gasmanninum ef ég gengi með hatt. Gasmaðurinn er til fyrirmyndar og gott að vita af honum á götunni.

0 comments: