þriðjudagur, 27. maí 2008

Kínverjar eru frábærir


Kínverjar hér í Gautaborg héldu á dögunum afar áhrifamikla minningarathöfn við gosbrunninn í Gautaborg. þeir tendruðu á kertum sem mynduðu tölustafnina 5:12 en þá hófst hinn hörmulegi jarðskjálfti sem tók 80.000.- mannslíf. Ég átti leið í bæinn þetta kvöld og tók myndir af þessari látlausu athöfn og gaf smá pening í söfnun til handa fórnarlömbunum. Nágrannakona mín er frá Kína og það er alltaf gaman að tala við hana. Hún er prófessor við Gautaborgarháskóla í kennslufræðum og er fróðleiksnáma um allt milli himins og jarðar. Ég spurði hana aðeins út í kínverskt samfélag og sérstaklega hvernig einsflokks kerfi virkar í þessi brjálæðislega uppgangi. Mér finnast fréttir frá Kína vera kaótískar oft og tíðum. Engin stjórn, bara money og 200 hæða skrifstofubyggingar. Hún fræddi mig aðeins um þetta og sagði að í Kína er eiginlega allt liðið hvað varðar buissness en það eru takmörk. Skýr takmörk á frelsi viðskiptamanna.

Mig langar til Kína. Bróðir minn hefur verið þar og sagt mér óborganlegar sögur frá Peking. Leigubílstjórasögurnar hans Auðunns eru ótrúlega fyndnar.









Kínverjar í Gautaborg minnast landa sinna.

0 comments: