þriðjudagur, 27. maí 2008

Leikskólaprestar fagna.

Frumvarp um grunnskólalög verða að öllum líkindum samþykkt með ákvæði um að skólastarf skuli mótað af "kristilegum menningarafi". Þetta er hrikaleg afturför frá gömlu lögunum (sem voru líka trúarleg) og furðulegt að Alþingismenn skuli virkilega stuðla að samblástri trúar og ríkis. Í fjótu bragði er þetta ákvæði ósköp saklaust en ríkiskirkjan mun nota þessa klausi til þess að ástunda trúboð í grunn -og leikskólum. Þetta hafa dæmin sannað. Vinaleið í Garðabæ var t.d alltaf afsökuð á þann hátt að ekkert væri hægt að gera vegna þess að það stæði einfaldlega í grunnskólalögum að skólastarf skuli mótað að "kristilegu siðgæði". Átökin um Vinaleið voru afar hörð og óvægin. Sem betur fer var hætt við vinaleið en ekki fyrr en eftir að kærur og klögumál höfðu verði sendar þar til gerðum yfirvöldum. -Og ríkiskirjan bakkaði.


Ég er ekkert skrýtin kall sem er með kristindóminn á heilanum, heldur pabbi í fæðingarorlofi sem vill búa börnum sínum almennilegt samfélag og er tilbúin að gera eitthvað í því. Hvernig dettur fólki í hug að blanda saman trúarbrögðum (á ósýnilegar verur og hálfguði) saman við lög sem eiga að gilda í landinu?

-Ég bara átta mig ekki á því!..

Ég sé fyrir mér að ef þessi lög verða samþykkt þá verða þau kærð með tilheyrandi látum. Það er því ekkert bjart framundan hjá þeim sem eru á móti aðkomu trúarstofnanna í skólum landsins. ég læt að gamni fylgja með mynd af leikskólapresti að boða trú í leikskóla í Reykjavík. Okkur í Vantrú hefur gjarnan verið bríkslað um öfgafullar skoðanir o.þ.h en okkur hefur aldrei dottið í hug að boða vantrú í leikskólum.

-Sveimér þá alla daga...

0 comments: