Eins og allir vita þá enda sum fyrirtækjanöfn á orðinu -land. Leikfangaland, tölvuland. klósettland osfr. Hversvegna hefur engum dottið í hug að stofna ísbúðina Ísland? Ísland væri móðir allra ísbúða og þar væri hægt að fá skriljón tegundir af ís. Matseðillinn gæti verið með vísanir í jökla landsins. Miðlungsstór ís gæti heitað "Langjökull", stærri ís og feitari héti "Mýrdalsjökull" og stærsti ísinn í búðinni héti að sjáflsögðu "Vatnajökull" Sjeikin héti "Jökulhlaup". Í Íslandi væri hægt að fá miðstærð af skeiðarárrhlaupi, með súkkulaði og jarðaberjabragði. Kúluísinn héti að sjálfsögðu "snjóbolti".þriðjudagur, 27. maí 2008
Miljón dollara hugmynd..
Eins og allir vita þá enda sum fyrirtækjanöfn á orðinu -land. Leikfangaland, tölvuland. klósettland osfr. Hversvegna hefur engum dottið í hug að stofna ísbúðina Ísland? Ísland væri móðir allra ísbúða og þar væri hægt að fá skriljón tegundir af ís. Matseðillinn gæti verið með vísanir í jökla landsins. Miðlungsstór ís gæti heitað "Langjökull", stærri ís og feitari héti "Mýrdalsjökull" og stærsti ísinn í búðinni héti að sjáflsögðu "Vatnajökull" Sjeikin héti "Jökulhlaup". Í Íslandi væri hægt að fá miðstærð af skeiðarárrhlaupi, með súkkulaði og jarðaberjabragði. Kúluísinn héti að sjálfsögðu "snjóbolti".
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
1 comments:
Ég sem hélt ég vissi allt um Grafarvoginn, sérstaklega Foldahverfið! Jesúborgarar hafa alveg farið framhjá mér. Skil ekkert í því að þetta hafi ekki gengið. Hægt að mæta í messu hjá Vigfúsi kl. 10 og ganga svo til ataris á Jesúborgurum í Hverafoldinni á eftir, "einn Lazarus og messuvín takk".
Góðar þessar jöklahugmyndir, ég þarf að skjóta þeim að Hlédísi. Það er gaman að sjá hvernig sveitastelpa skreytir ísbúðina sína, stór mynd af kúm út í haga og svo "fjölskyldumyndaveggur" með týpískum sveitamyndum, börn með lömb og kálf, fólk í heyskap, Ferguson o.s.frv. Þú þarft að kíkja við í Suðurveri næst þegar þú átt leið um.
http://www.facebook.com/pages/Reykjavik-Iceland/Isbudin-island-Sudurveri/299115666416
Kv. Dofri.
Sendu inn athugasemd