þriðjudagur, 27. maí 2008

Óþolandi fiðlupikk

Desperate Housewifes eru ágætis þættir. Ég er reyndar hættur að geta horft á þá vegna þess að það er alltaf stanslaust fiðlupikk í gangi. Takið eftir þessu. Tónlistin er eiginlega öll pikkuð á fiðlur. Þetta er óþolandi. Þegar þættirnir enda og dularfull og seiðandi kvenmannsrödd segir eitthvað dularfullt undir fiðlupikki dauðans, fer um mig klígjutilfinning.

Ég er hættur að þola þetta. Annars finnst mér Bree alltaf ferlega sæt og myndi taka hana fram yfir Gabi á hverjum degi. Gabi er slut en Bree er fáguð.... grrrrr
-Nú eru vinslit yfirvofandi því ég veit að þegar Stálmúsin les þetta þá eyðir hann mér úr símanum sínum.

Annars leiðist mér sjónvarpsþættir og bíómyndir í sjónvarpi. Það eina sem eitthvað vit er í að glápa á eru fræðsluþættir, menningarþættir og heimildamyndir.

0 comments: