Í Svíþjóð er vændi bannað og kaup á vændi sömuleiðis. Þessi lög voru sett í þeirri von um að uppræta vændi úr sænsku samfélagi. Sumum á Íslandi hefur þótt þetta framtak Svía til fyrirmyndar. Vinstri grænir og Feministafélag Íslands hafa oft og tíðum bent á þetta framtak með velþóknun. Því miður fyrir þessa hópa þá er komið á daginn að þessi lög eru gagnslaus. Vændisframboð hefur hvorki aukist eða minnkað síðan þessi lög voru sett. Það eina sem hefur breyst er framsetningin á vændinu. Vændið fór bara undirgound. Helstu birtingarmyndir þess núna eru spjallsíður. Þar er hægt að fá allt vændi í heiminum.
Mér finnst rauði þráðurinn í málflutningi þeirra sem vilja uppræta vændi vera sá að þeir trúi þvi ekki að þeir sem ástunda vændi, geri það af fúsum og frjálsum vilja. Ég set stórt spurningamerki við þessa fullyrðingu. Við erum sem betur fer mismunandi og deilum ekki sömu siðferðis eða kynferðis prinsippum. Þessi staðreynd er sett svo glæsilega fram í fána samkynhneigðra en sá fáni táknar marbreytileika samkynhneigðra. Sumar lessur eru butch meðan aðrar eru sætar og fínar. Leðurhommar, latex, BDSM. Svona get ég haldið endalaust áfram. Litirnir í regnbogafánanum tákna þennan fjörbreytileika. Staðreyndin er að við fílum mismunandi hluti og við erum ólík. Að halda því fram að allir í vændi geri að úr einhverri nauðvörn er móðgun við mannlegt eðli og fegurstu prinsipp upplýsts samfélags. Ég sé bara ekkert að því að fólk þiggi peninga fyrir kynferðisgreiða. Fólk er alltaf að því hvort sem er á einn veg eða annan.
0 comments:
Sendu inn athugasemd