laugardagur, 24. maí 2008

Svíar sigurvissir í Eurovision....

Svíar eru ekkert alltof hrifnir af framlagi Íslands í Eurovision. Lagið skorar lágt meðal eurovision sérfræðinga og þykir litlaust. Svíar eru reyndar afar hrifnir af sínu eigin framlagi, laginu Hero með Charlotte Pirelli. Pirelli þessi er hreinlega út um allt í sænsku pressunni. Hún er víst að losa sig við kallinn sinn þessa stundina. Sænskir hafa af þessu töluverðar áhyggjur. Charlotta er alger skaphundur og talar ekki við fölskylduna sína út af e-m tittlngaskít. Hún hefur tekið ”þöglu aðferðina” á fjölskyldu sína í áratug eða meira. Eitt er víst að þögla aðferðin dugar ekki í kvöld. Hún verður að syngja eins og engill. Charlotte vann keppnina hérna um árið og er það mat sérfræðinga að brjóstastærð hennar hafi riðið baggamuninn á lokasprettinum. Núna er Charlotte töluvert grennri og ekki eins brjóstgóð og þegar hún vann síðast. - Sænskir hafa einnig áhyggjur af þessu.

Annars er ég með pottþétta sigurformúlu fyrir Ísland. Við eigum að senda Stormsker og Stefán Hilmarson. Element of surprise er alltaf vanmetin auður. Hugsanlega færu þeir að fljúgast á.

-Það dygði sennilega til sigurs.

-o-o-o-o-o-o-o-o-o-

0 comments: