föstudagur, 30. maí 2008

Trékall til Kristins.

Nú er ég hálfnaður með trékallinn til Kristins H. Gunnarssonar. Sá verður ekki síðri en sá sem fór í póst í dag til Bjarna Harðassonar. Það væri óskandi að þessir fyrrverandi samherjar bæru saman kallana sína í sumar yfir góðri spólu og ilmandi poppkorni.

Ég vona bara að vitleysingurinn sem hringdi í mig finni gremju sinni annan farveg en að hringja í mig með óbótaskömmum. -Þetta var hrikalegt.

0 comments: