Þegar ég athugaði í dag þá höfðu 50.113 manns séð þegar Svarthöfði svindlaði sér í röðina í skrípagöngu presta á dögunum. Ég verð að taka fram að ég átti engan þátt í þessu
gysi, en vissi af þessu en átti ekki von á að þetta heppnaðist svona vel. Þetta var ekki á vegum
Vantrúar en því er ekki að neita að gerningsmenn eru í félaginu.
Í framhaldi af gys-hugmyndinni um að Svarthöfði sér í hópi svartstakka ríkiskirjunnar, hver væri þá keisarinn sjálfur? Er það Páfinn í róm? Oft hefur verið bent á óhugguleg líkindi milli Rottweilers Páfa og Palantines keisara.

Ef ég væri ekki skeptíker þá færi um mig kuldahrollur.
0 comments:
Sendu inn athugasemd