sunnudagur, 22. júní 2008

Borgarstjóri spilar sig stórt..

Hver dáð sem maðurinn drýgir er draumur um konu ást. Þessi orð detta mér stundum í hug enda fela þau í sér afar beinskeitta visku. En beinskeitt viska er á fallanda fæti eins og allir vita. Það er ljótt að segja sannleikann. Það er særandi og einhverjir gætu farið að gráta.

Þegar ég las um á Orðinu á götunni að Ólafur F. Magnússon hefði hrifist svo að söng færeysku söngkonunnar Sölvu Ford að hann hefði boðið henni að syngja á næstkomandi menningarnótt datt mér reyndar fyrst í hug kvikmynd áður en draumurinn um konuást kom í hugann. Það var kvikmyndin ”Maid in Manhattan”. Sagan um ríka og valdamikla kallinn sem tekur að sér óþekkta almúgastúlku og giftist henni, því augjóst er að borgarstjórinn í Reykjavíki City er að kynda upp Sölvu Ford. Svona bíomyndir eru til í óteljandi útgáfum og þú þekktasta er sennilega Pretty Woman, í henni hittir Richard Gere hamingjusama hóru og giftist henni. En Ólafur F Magnússon lufsaðist loksins í ferðalag á kostnað Reykvíkinga og hitti fyrir hina fögru Sölvu Ford. Borgarstjórinn og söngfuglinn að sunnann. Ævintýri er í uppsiglingu og ekkert nema gott um það að segja. -Nema eitt.

Ég vissi ekki að borgastjóri ætti að velja listafólk á menningarnótt? Er ekki heill skari af færu fólki sem gerir þetta. Kannast einhver við þessa Sölvu Ford? Það er svo innilega hallærislegt að eini staðurinn sem borgarstórinn í Reykjavík getur státað sig af titlinum er á erlendri grundu. En það að stæra sig af vegtyllum á borð við borgarstjórastóla er að ég held, inntakið í stjórmálastússi langflestra sem stjórmál stunda. En þarna var borgarstjórinn semsagt ekki á heimavelli með sinn 3% stuðning heldur 100% borgarstjóri í Færeyjum. Hann hefur vonandi fengið hégóma sínum þægilegan farveg í meðal færeyskra. Hann hefur getað orðið einhver annar en hann er með prósentustigin sín 3, vafasaman stjórmálaferli, stjórn(fá)visku og svikin loforð. Það er gott að komast burtu frá sjálfum sér við þessar aðstæður og fara til útlanda. Þar getur maður verið hver sem er. -Jafnvel kvikmyndastjarna á borð við Richard Gere?

Borgarstjóri hefði reyndar átt að fara í annan gír en Richard Gere því persónulegar kyndingar á Sölvu Ford, söngfuglinum fagra, er ekki embættisverk Borgarstjóra Reykjavíkur. Ef Ólafi finnst svona mikið til Sölvu Ford koma, ætti hann bara að bjóða henni í heimsókn á sinn kostnað frekar en að plögga hana inn í dagskrá Menningarnætur.

En það er gaman að spila sig stórt í útlöndum. Sýna vegsauka þrátt að enginn innistæða sé fyrir honum. -Hver dáð sem maðurinn drýgir er draumur um konu ást...
Hverjar eru dáðir Ólafs F. Magnússonar í embættisfærslum sínum? Eru það Laugavegskofarnir? Er það salan á Fríkirkjuvegi 11 (sem Ólafur var alfarið á móti... en skipti svo um skoðun) Er það afturhaldsstefnan í skipulagsmálum Reykjavíkur? Er að kannski að hafa þorað upp í flugvél til Færeyja?

0 comments: