Ég hef ekki neytt áfengis í frá árinu 2000. Reyndar frestaði ég þessu bindindi alveg fram á siðasta dag þessa ágæta árs. Síðan þá hef ég verið blá fokking edrú. Bráðum í 9 ár. Þessi vegferð hefur gengið afar vel og mér hefur aldrei langað í vín. Ég hef meir að segja aldrei þennan tíma smakkað pilsner eða þviumlíkt. Eftir mikið rifrildi við félaga mina sem endaði í símtali við tæknimann hjá Ölgerð Egils Skallagrímssonar hef ég drukkið Malt á tyllidögum. Uppskriftinni var breytt fyrir löngu síðan og síðan þá er eignlega ekkert áfengi í maltinu.Víkur nú sögunni að efni þessa blogs. Í kvöld vorum við konan að elda svínalundir og keyptum tilbúna rauðvínssósu með. Sósan var helvíti góð en frekar mikið rauðvínsbragð af henni. Ég tékkaði á innihaldi sósunnar og komst að þvi að ég er sennilega fallinn eftir þetta bráðum 9 ára bindindi! Sósan er rúm 2% áfengi og er því eins og lítið bjórglas af styrkleika. Sósunni skipum við á milli okkar þannig að það má segja að ég hafi fengið mér slurk af bjór í kvöld.
-Þvi ber að fagna.... Eða hvað?
0 comments:
Sendu inn athugasemd