Það væri gaman að vita hvaða forsendur liggja að baki útreikingi á meðlagi með börnum. Ég greiði meðlag með dóttur minni og sé auðvitað ekkert eftir þeim 19.760 krónum sem ég borga mánaðarlega. Ég vildi helst geta borgað meira og geri það vonandi eihverntíman. En ástæða þessarar hugleiðingar er sú að á laugardaginn kemur dóttir mín til min og verður hjá mér í næstum 5 vikur og ég borga meðlag til móður hennar á meðan!Nú verð ég að taka fram að samband mitt við barnsmóður mína er hið besta og ég gæti ekki verið heppnari. Peningamál hafa eiginlega aldrei verið deilumál okkar í milli og við höfum leyst þau máls sem upp koma með einu símtali.
Þessi meðlagshugleiðing mín er þessvegna almenns eðlis en ekki sértæk
svo gripið sé til orðræðu sem einkennir Samfylkinguna. :)
Ég vildi endilega fá að sjá reikniformúluna sem liggur að baki meðlaginu.
Getur verið að formúlan geri ekki ráð fyrir að barnið dvelji hjá föðurnum
stóran hluta af árinu. Samkvæmt hefðbundum umgengnisreglum á barn að dvelja aðra hvora helgi hjá pabbanum. Einn mánuð á sumrin og viku samtals í kringum jól og páska.
Þessi upptalning er svona um það bil eins og sagt er.
Hver helgi er frá föstudegi til mánudags. s.s um 3 dagar
það gera 6 daga á mánuði. þetta gera þá 66 daga á ári + 30 daga sumarfrí.
Umgengni við barn er því um 100 dagar á ári sé jóla og páskafrí tekið í
reikninginn. 100 dagar eru rúmir 3 mánuðir. Væri réttlátt að ég fengi meðlag fyrir þessa
3 mánuði? Innifelur kannski meðlagsupphæðin þessa umgengni mína í sér þessa
3 mánuði sem barnið er hjá mér? Þetta væri gaman að vita. Ef einhver hefur
hugmynd um þetta má sá hinn sami gjarnan senda mér línu.
Pabbar sem greiða meðlag er hópur sem afar auðvelt er að labba yfir og
okkur sárlega vantar einhvern pólitíkus sem vill leiðrétta þann órétt
sem oft og tíðum dynur á meðlagsgreiðendum. Ég hef forvitnast aðeins um forsendur
þessa útreiknings en aldrei fengið svör. Mér er sagt að formúlan sé leyndarmál. Það ýtir enn undir grunsemdir mínar að þessi tala er bara ákveðin út í loftið án þess að taka tillit til þessara 100 daga sem barnið dvelur hjá pabbanum.
2 comments:
Er ekki meira en sammála..Ég er kona sem borga meðlag með 3 börnum en aðþví að ég er að borga sænsk meðlag get ég dregið frá þá daga sem ég hef börnin hjá mér og fær þá faðir þeirra ekki neitt á meðan eða þarf að borga það aftur til rikisins. En málið er að hann borgar ekki mér neitt meðlag þegar ég hef börninn og kostar allt 2 fallt þegar ég hef þau. Eftir að ég fór að borga meðlag skil ég ykkur karlmenn alveg og sé ég að islenska kerfið er langt eftir á hvað varðar þessi mál.
kveðja
Gurrý
Ég talaði við lögfræðing sem ég þekki og stendur í svipuðum sporum og ég. Reyndar er hún maki manns sem greiðir með 2 börnum. Þetta mál hefur s.s oft komið upp hjá þeim. Hún segir mér (lögfærðingurinn) að inn í formúlunni (sem reyndar er ekki til, heldur er miðað við lagabókstaf) sé gert ráð fyrir að dvölin hjá "pabbanum" komi í raun til frádráttar en það sé bara ekki tekið fram. Meðlag á því að vera töluvert hærra en nú er. s.s það er gert ráð fyrir frádrætti frá meðlagi þann tíma sem börn eru hjá "hinu" foreldrinu.
Ekkert er hægt að gera í þessu nema lagabreyting komi til.
Sendu inn athugasemd