Eftir að Raleigh-hjólinu mínu var stolið, keypti ég mér geðveikt hjól. Það var sértakt útlits og afar þægilegt á alla máta. Hjólið átti að kosta 79.000 en ég fékk það á 49.000 vegna smágalla á keðjuhlíf. Á þessu hjóli var ég í 2 eða 3 ár. Það var svo á Gay Pride að ég parkeraði því við Hlemm í sólarhring og rammlæsti því með gríðaröflugri keðju. Daginn eftir var það horfið. Ekki minnkaði álit mitt á glæpamönnum við þetta hvarf. Ef einhver hefur séð þetta hjól þá vinsamlega látið mig vita. Það er bara til 2 svona hjól á landinu og eitt þeirra er mitt hjól þótt það kunni að vera í geymslu hjá einhverju ómerkilegum gimbli.
Við reiðhjólaþjófa landsins vil ég segja eftirfarandi: Fáið ykkur vinnu. Hversvegna getið þið ekki safnað ykkur fyrir hjólum eins og allur almenningur? Þegar gimillinn stal fína hjólinu minu var hann í rauninni að stela frá mér tíma. Tíma sem ég vann í vinnunni minni. Ég var semsagt að þræla fyrir dusilmenni sem er hvort í senn ómerkilegur aumingi og siðblindur ræfill.
-Það er óbæranleg tilhugsun.
0 comments:
Sendu inn athugasemd