Hafið þið tekið eftir lesendur góðir hversu undanlegan framburð Bubbi Morthens hefur tamið sér? Á plötunni Geislavirkir er lagið Blóðið er rautt. Lagið er fínt en textinn óskiljanlegur eins og títt er með lög Bubba. Í þessu lagi kristallast þessi sérkennilegi framburður Bubba sem ég held að sé hættur að nota.
Í laginu syngur Bubbi.
-Frambjóðandinn með ýstruna sína, í ræðupúltinu segir háft (hátt). Mér þykir það leitt að húsið skyld'ann missa en malbikið á að ligg´í þessa áft(átt
-Leigubílstjóarar á Miðnesheiði liggja, týna egg háft og láft. (hátt og lágt) uppgötva allt í einu að það er miðað á þá byssu og sagt sorry en þetta nær ekki nokkri áft.(átt)
-Vetnissprengjur í skýlunum tifa, allt þar inn´er málað gráft (grátt) fyrr eða síðar mun rauði síminn hringa og skýlin verða opnuð uppá gáft. (gátt)
-Sprengjur munu fjúga, hljóðmúrinn kljúfa, en þær munu koma úr annari áft (átt)
Ég man eftir partíi á Patreksfirði þar sem partýgestir sungu hásöfum með þessum framburði allskonar dægurperlur með ógleymanlegum hætti.
0 comments:
Sendu inn athugasemd