laugardagur, 21. júní 2008

Sovíetmenn fagna


Það var fjör á Rauða torginu eftir sigur Sovíeska landsliðsins á slökum Hollendingum í kvöld. Nikkur voru þandar og tregafullir hjómarnir úr þeim blandaðist við gáskafullan pípublástur sem hljómaði úr glansandi látúns gripum. Það má með sanni segja gleðin hafi ríkt í Bjarmalandi. Aðstoðar landbúnaðarráðherra Sovíetríkjanna, Kolev markskálkur sagði við þetta tækifæri við InterFax fréttastofuna að "nýr tími væri í augsýn í Sovíeskri knattspyrnu". Hann sagði ennfremur að til stæði að auka verulega við framlög til íþróttamannvirkja út um öll Sovíetríkin með áherslu á Kákasuslýðveldin en Andrei Arshavin sóknarmaðurinn sem skoraði í leiknum, er Kahkassi.

0 comments: