miðvikudagur, 25. júní 2008

Stórkostnleg tíðindi!


Eftir að mér barst til eyrna að heill kassi af Spur Cola hefið borist á dögunum í væntanlegt Safn Ölgerðarinnar bárust í mér blendnar tilfinningar. Var bæði sár og reiður. Þar sem ég er stoltur eigandi einu óopnuðu spurflöskunnar í heiminum varð mér ljós að hér var um merkan fund að ræða. Ég bloggaði um málið þann 19. júni. Þegar ég sá fréttina í DV um þennan stórmerka Spur-fund sá ég nokkuð undarlegt. Um mig hríslaðist gleðihrollur engum líkur.

Á myndinni mátti jú greina nokkar spurflöskur en enginn var með gamla (góða) laginu eins og min flaska. Það eru reyndar nokkar tómar Spur flöskur með gamla laginu en engin full. Þær Spurflöskur sem Ölgerðin fékk eru í alveg sömu flöskum og gamla appelsínið. Glærar litlar og satt best að segja, fullkomnlega sjarmalausar flöskur. Þessar litlu spurflöskur í appelsínflöskunum voru framleiddar í afar stutta stund enda þótti fólki flöskurnar hallærislegar. Í huga flestra sem komnir eru til vits og ára er Spurið með gamla laginu eina sanna spurið.

Spur flaskan mín er afar fallísk í útliti og er einstök að öllu leiti. Mér skilst að verðmæti hennar sá á við nýján Range Rover. Ég ítrkeka því tilboð mitt til Ölgerðarinnar um að láta af hendi Spur flöskuna mína fyrir sæmilega stóran hlut í Ölgerðinnni hf.

0 comments: