fimmtudagur, 31. júlí 2008

Grillmeistari RÚV....

Helgi Seljan.....

Loksins loksins hefur íslensk blaðamannastétt fengið spyril sem er ekki góður. Hann er frábær. Grillmeistarinn flippaði (ham)borgarstjóranum eins og fimasti unglingur á vaktinnni hjá MacDonalds.

Kastjós er ekki þáttur þar sem stjórmálamenn fá ókeypis auglýsingu um hve frábærir þeir eru. Kastljós hefur sannaði sig sem alvöru umræðuþáttur og sinnir hlutverki sínu með glæsibrag.

-Bravó...

1 comments:

Daníel sagði...

Helgi Seljan þurfti að hafa mikið fyrir því að fá svar við þessum tveimur spurningum sem hann lagði upp með að fá svarað, þ.e. hvernig bar brottvikningu Ólafar úr skipulagsráði að og hver er afstaða Ólafs gagnvart Listaháskólanum á Laugarveginum. Svo loksins þegar Ólafur svaraði þessu tvennu var eins og Helgi tæki ekki eftir því og hann hélt áfram að spyrja. Ólafur kom hins vegar mjög illa út úr þessu og það var fáránlegt að horfa á hann tala út og suður og reyna allt til að forðast að svara spurningunum. Hins vegra athyglisvert ef rétt er það sem hann sagði í lok viðtalsins að hann hefði verið boðaður í kastljós til að ræða um Bitruvirkjun og umhverfismál. Bæði að Katljós sé að blekkja menn til að mæta og eins að hann hafi trúað þessu. En svo getur líka verið að hann sé að rugla með þetta eins og annað.