föstudagur, 18. júlí 2008

Göróttur hreinsilögur


Ég skal hengja mig upp á það að það er kannabis í þessum uppþvottalegi. Þegar ég skrúbba með þessum legi þá ilmar húsið eins og hassbúlla. Mér þykir þetta pínulítið fyndið. Ég þekkti einu sinni Finna sem var þess fullviss að það væri amfetamín í Jollý Kóla. Þetta er hið dularfyllsta mál.

Annars heyrði ég milljón dollara hugmynd Hugmyndina um Mjá-kattamatinn.. Hugmyndin er að fyrirtæki sem framleiðir kattamat blandi heróíni út í dósirnar. Þannig er hægt að húkka kettina á Mjá-kattamat. Þeir verða gersamlega vitlausir í Mjá-kattamatinn og hætta öllum þvælingi og bíða bara inn í eldhúsi eftir að dósaupptakaranum. Kettirnir fúlsa við öðrum tegundum og vilja bara Mjá-kattamat.

-svolítið sniðugt.

1 comments:

Daníel sagði...

En finnst þér ekki skrýtið að það er hægt að fá kattamat með túnfisk- og nautakjötsbragði? Aldrei hef ég séð kött veiða túnfisk eða naut. Hvar er kattamaturinn með músa-, rottu- og snjótittlingabragðinu?