fimmtudagur, 17. júlí 2008

Hvert fóru peningarnir?

Ég held að það sé virkt orsakasamhengi milli kreppunar á skuldabréfamarkaði og hækkandi olíuverðs.

Skyndilega fundu fjármagnseigendur að skuldabréf væru áhættusöm og fjárfestu í öruggasta geira sem er í boði. Olíu og bensíni. Má ekki skýra hækkandi olíuverð með því móti að eftirspurn eftir því að fjárfesta í olíu með samhliða ávöxtunarkröfu skýri hækkandi olíuverð.

Það hefur nefnilega ekkert gerst síðan líterinn af bensíni kostaði 100 kall út í það að líterinn kostar 200 kall. Sama framleiðslumagn, sama ástand heimsmála (fyrir utan hræringar v. Íran).

Peningarnir fóru í spákaupmennksu með bensín.

0 comments: