þriðjudagur, 29. júlí 2008

Þjóðin sem fann upp öryggisbeltin

Svíar eru sniðugir. -Þeir fundu upp öryggisbeltin. Annað sem þeir hafa fundið upp og er sniðugt er að á Statoil-bensínstöðvunum er hægt að leigja bíla fyrir lítið fé. Nissan Note kostar 299 skr á sólarhring. Ætli það sé ekki í kringum 4000 kallinn. það sem er sniðugt við þetta er að bensínstöðin er alltaf opin og því hægt að stökkva inn á nánast hvaða stöð sem er og taka bíl á leigu. Margir bíl-leysingjar nota þetta mikið.

Flestir íbúar Gautaborgar nota almenningssamgöngur til að fara í vinnuna en auðvitað er gott að hafa aðgang að bifreið þegar maður þarf að skreppa í Jysk Sengetojlagerenn eða Bauhaus. Granni minn leigjir sér oft bíl hjá Statoil.

0 comments: