-Ég er trúlaus eins og meirihluti Svíja og það kom svolítið fyndin frétt af trúleysingja hér í Gautaborg. Þetta var ung kona með skoðanir á lífinu eins og gjarnt er meðal trúlausra og til að undirstrika trúleysi sitt lét hún tattúvera n.k vogarskál á bakið á sér.
Vinstra lóðið átti að tákna hið illa eða EVIL og hið hægra átti að tákna hið góða eða GOOD. Svo valt það bara á eigin siðferði viðkomandi hvað vogin sýndi. -Enginn yfirnáttura þar á ferðinni. Eitthvað las tattóveringameistarinn þetta vitlaus og í staðinn fyrir að skrifa Good skrifaði hann GOD og eyðilagði konseptið hjá þessum ólánsaman trúleysingja.
Hérna er mynd af þessu misheppnaða tattú-i og skyssunni af myndinni (sem er töluvert flottari en tattúið sjálft) Hérna er upphaflega fréttin.
0 comments:
Sendu inn athugasemd