
Mikið leiðist mér þegar ég sé þetta orðtak vera notað vitlaust. Flestir segja nefnilega (eins hálfvitalega og það hjómar) OFT Á TÍÐUM.
Orðtakið á vitaskuld að vera svona: OFT OG TÍÐUM.
orðtakið er að lýsa einhverju sem gerist oft og tíðum. EKKI þvi sem gerist oft á tíðum. Það sem gerist oft Á tíðum er venjulega bundið við tíðarhringinn eða þvíumlíkt. Mögulega gæti eitthvað gerst oft á tíðum í kirkjumáli.
Hafið þetta í huga ágætu lesendur þegar þið skreytið mál ykkar með þessu skemmtilega orðtaki.
4 comments:
Sæll frændi.
Nú má spyrja sig hvað er rétt og hvað er rangt.
Fjölörg dæmi í ritmáli með notkuninni á tíðum:
http://lexis.hi.is/cgi-bin/ritmal/leitord.cgi?adg=daemi&n=507034&s=604278&l=t%ED%F0&rm=t%ED%F0um
Elstu dæmin frá 1851. . .
. . .og auðvitað eru líka dæmi um hitt:
http://lexis.hi.is/cgi-bin/ritmal/leitord.cgi?adg=daemi&n=358299&s=429651&l=oft&rm=oft
. . .og síðast en ekki síst má minnast þess að "oft og tíðum" er eldra, en það gildir líka að ömmur okkar komu gjarna frá "læknirinum" - sem er mun eldri mynd en sú "rétta" sem við notum í dag.
Sæll frændi. Oft og tíðum er bara svo miklu lógískara.. :)
- Og fallegra.
það staðfesti rannsókn sem gerð var af Árna Óla blaðamanni árið 1952 og birt var í Þjóðólfi sama ár. :D
Sendu inn athugasemd