Strandakirkja gegnir hlutverki kompáss á trúarlíf Íslendinga. Ríkiskirkjuprestar fylgjast vel með nýjustu tölum um hvað safnast mikið ár hvert og þykja það merki um sterkt trúarlíf ef vel safnast og hafa áhyggjur af stöðunni þegar áheitum fækkar. Nýlega var viðtal við ríkiskirjuprest þar sem hann mærði mjög Strandakirkju og taldi áheit á hana sem sönnum um inngrip guðsins síns í líf þeirra sem borga fé hennar til handa.Þetta þykir mér frumstætt -svo ekki sé tekið dýpra í árinni.
Ef að ríkiskirjuguðinn er í alvörunni til og að áheit á Strandakirkju virka í alvörunni, geta þá krabbameinssjúkir lagt til fé í kirkjuna og fá meina sinna bót? Getur það verið? Er kerfið virkilega svona? Að borga peninga í ákveðinnar kirkju til þess að fá lækningu eða happadrættisvinning? Er hinn almáttugi Skapari virkilega svona duttlungafullur? Hefði kærasta vinar míns sem dó frá 3 ungum börnum átt að borga sjúkrapeningana sína í Strandakirkju? Hefði hún þá lifað?
Staðreyndin er sú að áheit til handa Strandakirkju virka ekki neitt og ríkiskirjkuprestar viðhalda ómerkilegri og skaðlegri hjátrú til þess að hafa fé af fólki.
Ómkerkilegri og aumingjalegri tekjuöflun er vandfundin.
0 comments:
Sendu inn athugasemd