fimmtudagur, 17. júlí 2008

Átu kött í mótmælaskyni


Danskir nemendur í danska blaðamannaskólanum átu kött á dögunum. Kokkur drap köttinn og eldaði fyrir nemana. Þessi óvenjulega máltíð átti að vekja fólk til umhugsunar um þá grimd sem felst í svína, kjúklinga og nautakjöts áti.

Í staðin fyrir að auka vegsemd málstaðarins þá var Facebook síðu nemana lokað og myndir af máltíðinni voru teknar út. þessi uppákoma vakti mikla reiði meðal Dana. Allt um málið hér.

Mér þykir þetta sérkennlieg. Forvitnilegra þykir mér að kettir bragðast víst eins og kjúklingur, bara seigari.

2 comments:

Hildur sagði...

Kræst, af hverju átu þau ekki bara sjálfdautt mannakjöt?

Daníel sagði...

Mig hefur alltaf langað til að borða kött, hund, rottu o.s.frv., enda er það borðað víða um heim. Skilyrðið er þó að dýrið hafi verið ræktað til manneldis, annars getur kjötið verið uppfullt af bakteríum. Ég sé engan mun á því að borða hund eða svín og er fylgjandi hvortu tveggja.