fimmtudagur, 28. ágúst 2008

Alkahólískt samband

Það hefur gengið mikið á í íslensku samfélagi undanfarna viku. nokkur alvarleg hneykslismál hafa komið upp á yfirborðið.
  • Fyrsta hneykslið var laxveiðiferð til þá verandi toppa OR í boði Baugs og neitun Guðlaugs Þórs heilbrigðismálaráðherra um að sýna fram á að hann hafi endurgreitt ferðina.
  • Annað hneykslismálið var gisting samgöngumálanefndar á lúxushóteli í Reykjavík þrátt fyrir að allir hótelgestir ættu heimili nokkra kílómetra frá hótelinu.
  • Guðni Ágústsson var síðan staðin að því að "fegra" ræðu sína um grunnskólalögin þar sem á Alþingisvefnum. Breyting á opinberum plöggum eftirá hlýtur að orka tvímælis sér í lagi þar sem upptökur eru til af ræðu Guðna sem stemmir ekki við hina "fegruðu" ræðu.
  • Umdeild ferð Menntamálaráðherra til Kína hefur einnig verið í deiglunni og vegna 4 miljón króna kostnaðar. Fyrir utan þá staðreynd að hún fór 2svar til Kína á fáeinum dögum.
Þetta er svona það helsta. Því miður skyggði heimkoma Ólympíufaranna á þessi hneykslismál og satt best að segja blöskraði fólki þegar þingmenn reyndu að baða sig í silfurljóma verðlaunapeninga íslenska handboltaliðsins. En þett er ekki efni þessa bloggs. Efni þessa bloggs eru viðbrögð almennings við þessum rað-hneykslismálum.

Á blogginu og á spjallvefjum fóru menn mikinn í gremju og reiði gagnvart þessum málum en það sem var gegnumgangandi í umræðunni var einskonar sjálfsásökun. Á leiðinni í leikskólann með strákana mína þyrmdi yfir mig að svona umræða er nákvæmlega eins og hvernig fólki sem býr við heimilisofbeldi líður. Þetta er þeim að kenna. Svona upplifa einnig mörg fórnarlömb nauðgana sig. Þetta var þeim að kenna. Makar í alkahólísku sambandi upplifa einnig svona sjálfsásökun. "það er mér að kenna að maki minn drekkur".

Svona hugsunarháttur er afar skaðlegur og meðferð t.d til handa aðstandendum alkahólisma gengur út að að losna við þennan hugsunarhátt.

Staðreyndin er þessi. það er ekki okkur að kenna að Alþingismennirnir og sveitastjórnarmennirnir okkar eru siðspilltir ruddar. það er þeim að kenna. Stjórmálamenn eru kosnir af almenningi til þess að halda tímabundið um stjórntaumana og eiga að umgangast valdið sem þjónar en ekki stjórnendur. -Þeir eru þjónarnir okkar, ekki ósnertanlegt yfirvald.

Ef að ég ræð mann til að sjá um garðinn minn og kemst að því að hann stendur sig ekki í stykkinu og lýgur að mér, þá rek ég viðkomandi. Nákvæmlega sama gildir um stjórnmálamenn. Ef þeir ræna frá okkur eigum við að reka þá.

1 comments:

Nafnlaus sagði...

Við Íslendingar höfum sterka þrælslund sem helgast af vinnuþreytu og skulda-áþján. Þetta er eins og útrás íslensku víkinganna (les: þjófanna). Stákarnir okkar. Nei, þetta voru aldrei strákarnir mínir, skítalyktina fundu danskir blaðamenn langar leiðir, sem nú eru komnar í ljós, á blogginu en ekki í öðrum fjölmiðlum. Íslenskir blaðamenn eru láglaunastétt og þakklátir fyrir að fá að vinna við fjölmiðla. Þeir duga enda ekki lengi, alla vega þeir bestu.

Rósa Halldórs