þriðjudagur, 19. ágúst 2008

Ballið er byrjað : )

Ekki hlaut nýji meirihlutinn í Reykjavík byr í seglin fyrstu metrana. Þetta byrjaði þó á léttu nótunum. Nafnið á nýju stjórninni er hið skonda nafn "Carry On-stjórnin" með vísun í endalausan flokk breskra grínmynda. Síðan þegar haldið var úr vör þá pusaði fyrst duglega yfir nýju borgarstjórnina.

  • Marsibil ekki vera með og segir sig úr Framsókn. Meirihlutinn er því jafn veikur og meirihlutinn með Ólafi F
  • Gísli Marteinn fara í nám en sitja sem fastast sem borgarfulltrúi í stað þess að kalla til varmann. Þetta mun skaða nýja meirihlutann og vekur hneykslan langt inn í raðir Sjálfstæðismanna. Gísli var ekki kosinn til þess að sitja tvo fundi í mánuði. Starf borgarfulltrúa er fullt starf.
  • Ólafur F dylgjar svo endalaust um samstarfið við Sjálfstæðiflokkin sem sveik hann. Trúverðugleiki Ólafs er reyndar af skornum skammti en á móti kemur veit hann hvernig hlutirnir ganga fyrir sig innan vébanda Sjálfstæðisflokksins.
  • Skoðanakannarir sýna að skaðinn eftir bommerturnar þegar Villi var borgarstjóri eru ennþá að skemma fyrir Sjálfstæðisflokknum. 25% fylgi er nánast helmingur af hefðbundu fylgi flokksins í Reykjavík.

Ef ég ætti að gefa nýja meirihlutanum heilræði þá væri það að taka andstæðinga sína svolítið á orðinu og gera svolítið úr "Carry On" stymplinum. Hafa gaman að þessu. Vinna vel og örugglega og brosa. Hanna Birna er góður borgarstjóri. Hún á að leiða flokkinn sinn út úr þessum vandræðum og endurvinna traust borgarbúa á stjórnmálunum sem ástunduð eru í ráðhúsinu.

Nú er ballið byrjað og Sjálfstæðisflokkurinn ætti að smella af sér hlekkjum feimninnar, stíga á þjöl og taka nokkur stuðmannahopp í takt við e-a tryllta sígaunatónlist. Sýna hóværð, mennsku og auðmýkt.

-En allt eru þetta deyjandi hugtök eins og allir vita.

0 comments: