fimmtudagur, 21. ágúst 2008

Boðsferð í lax breytist í peninga.

Þegar Guðlaugur Þór endurgreiddi Hauki Leóssyni 550.000 krónur vegna laxveiðiferðar í boði Baugs, hlýtur Guðlaugur að hafa millifært upphæðina inn á reikning Hauks. Varla hefur hann greitt honum í reiðufé.

Hvað gerði Haukur Leósson við peningana! Getur verið að Haukur hafi látið féð aftur til Baugs? Eða hirti hann það bara sjálfur?

Það verður að skoða þetta mál nánar því ef Haukur hefur haldið fénu er hann orðin sekur um mútuþægni. Ef að Gunnlaugur Þór hefur ekki greitt Hauki, hefur hann gerst sekur um lygi.

Þessir gaurar verða að gera betri grein fyrir þessum peningum.

0 comments: