mánudagur, 18. ágúst 2008

Dramatískur Villi.


Ástæðan fyrir lélegri útkomu Sjálfstæðis og Framsóknarflokks í borgarstjórn er sú að fólki var ofboðið valdafíkn Sjálfstæðisflokks. Sjálfstæðisflokkurinn setti öll baráttumál sín til hliðar og tók upp stefnuskrá F lista í þeim tilgangi að fella Tjarnarkvartettinn. Þetta eru vinnubrögð sem eru fyrirlitleg. -Þetta gleymist ekki.

Skaðinn sem Vilhjálmur Þ hefur kallað yfir flokkinn sinn er yfirgengilegur. Fyrst með REI-ruglinu (þar sem afhenda átti verðmætasta fyrirtæki Reykvíkinga í hendur FL - Group) og svo með útsölunni á stefnumálunum til þess að komast að kjötkötlunum aftur. Afleiðinginn er sú að helmingur kjósenda Sálfstæðisflokksins hefur yfirgefið hann.

Sé saga Villa í borgarstjórn skoðuð er hún afar dramatísk. Shakespeare hefði ekki getað gert betur. Villi hefur verið maður númer 2 í valdakerfi Sjálfstæðisflokksins um áratugaskeið. Þegar Davíð fór úr borgarstjórastólnum var hann ekki eftirmaður þrátt fyrir að vera eðlilagasti kosturinn. Fengin var Markús Örn. Þegar Markús Örn klikkaði var aftur gengið yfir Villa af flokknum og Árni Sigfússon fenginn sem borgarstjórnarefni. Svo vann R-listinn sigur og stjórnaði borginni í 12 ár. Inga Jóna var oddviti Sjálfstæðismanna lengst af þeim tíma. Enn var gengið framhjá Villa. Loksins þegar hyllti undir sigur í borginni og eftir spennandi prófkjör fékk Villi loksins fyrsta sætið og vann barasta borgina og myndaði meirihluta með Framsókn.

Það má með sanni segja að Villi hafi sko aldeilis ætlað að sýna og sanna að hann gæti þetta. Ekki sýst fyrir samherja sína sem vantreystu honum ítrekað. Svo "lenti" hann í REI málinu. Var gabbaður og hröklaðist frá völdum.

Ég er þess fullviss ástæðan fyrir myndun meirihlutans með Ólafi F sé meira og minna persónulegur harmleikur Villa því hann setti allt í sölurnar til þess að vinna borgina aftur. Villi ætlaði ekki vera maðurinn sem tapaði borginni á svo snautlegan hátt. Þessvegna fóru stefnumálin á útsölu og Tjarnarkvartettinn sprengdur og Ólafur F gabbaður til samstarfs.

Nú er staðan þannig að það er Villi, maðurinn sem vildi sýna öllum og sanna að hann gæti verið borgarstjóri, er sá sem hefur skemmt mest fyrir Sjálfstæðisflokknum í Reykjavík. Villi er eitraða peðið. Hann er draumur andstæðinga sinna. Maðurinn sem eyðilagði glæsilega sögu Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík.

Sálfstæðisflokkurinn mun eiga undir högg að sækja svo fremi sem Villi er í borgarstjórnarflokki Sjálfstæðisflokksins. Þetta er tragísk saga. Strákurinn sem var alltaf varamaður í fótbolta og fékk aldrei að spila. Loksins þegar hann fékk tækifæri með liðinu skorar hann sjálfsmark og leikurinn tapast.

Maðurinn sem vildi sanna sig fyrir samflokksmönnum sínum og klúðrar svo dæminu á ögurstundu.

-Villi er sambland af Ríkharði 3ja og Claudíusi keisara.

0 comments: