
Þegar forseti Kína kom einhverntíman í opinbera heimsókn til Íslands upphófst mikið leikrit. Jógaiðkendur kenndir við Falun Gong voru handteknir í stórum stíl og settir í einangrunarbúðir í hrauninu við Grindavík. Þeir mótmælendur sem komust til landsins í gegnum síu íslenskra stjórvalda létu það ekki stoppa síg og röðuð sér meðfram Hverfisgötunni til þess að mótmæla.
En viti menn!. Stuðningsmenn kínverska forsetans mættu einnig og vopnaðir gríðarstórum fánum. Fánana breiddu þeir síðan út þannig að þeir skyggðu á mótmælendur forsetans. Þetta skapaði að sjálfsögðu nokkra núninga og ég man sérstaklega eftir Sigurði A þar sem hann tuskaðist við kínverskan námsmann.
Mér datt þessi saga hug þegar ég las um að stuðingsmenn nýjasta meirihlutans í Reykjavík ætluðu að mæta um leið og stuðnginsmenn minnihlutans í Reykjavík. Sjálfstæðis og Framsóknarfólk er hvatt til þess að mæta snemma (til þess að ná dýrmætu plássi á pöllunum) til að andstæðngarnir fengu ekki plássið.
Hver sá sem datt þessi smölun stuðningsmanna nýjasta meirihlutans ætti að taka pokann sinn. Með þessu móti er TRYGGT að fjöldi mótmælenda verður mikið meiri en ella. Mér þykir reyndar furðulegt að þessi smölun hafi farið af stað. Mótmælendur hafa sagst ekki ætla að fara inn á pallana (sennilega af tillitsemi við borgarfulltrúa) og standa fyrir utan Ráðhúsið. Samt ætla Sjálfssóknarmenn að mæta með staðgenglana sína á palla Ráðhússins!
Ég treysti á að Hanna Birna geri engar bommertur. Haldi stillingu og með bros á vör.
1 comments:
Sjálfssóknarflokkurinn :) Það er skemmtilegt.
Sendu inn athugasemd