
Það var kostlegt að fylgjast með leiknum á Eurosport. Sænskir íþróttafréttamenn héldu heldur betur með Íslandi. Skemmtilegast var þegar það HEYRÐIST í Adólfi Inga, íþróttafréttamanni RUV. Hann yfirgnæfði Svíana þótt hann væri að tala fyrir RUV en ekki Eurosport.
Sænskum þótti þetta afar fyndið enda ekki á hverjum degi sem svo mikið gangi á að Íslenska heyrist hrópuð í tryllingi sigurvímunnar í bakgrunni á íþróttaviðburðum.
Sænsku íþróttafréttamennirir voru eins og áður segir afar hrifnir af leik liðsins. Sérstaklega Ólafi Stefánssyni. Þeir minntust einnig á Sigfús Sigurðsson og sögðu hann vera 130 kílóa tröll en það væri ekki bara vöðvar á maganum á honum :)
0 comments:
Sendu inn athugasemd