föstudagur, 29. ágúst 2008

Eðlileg sjálftaka

Það voru kunugleg viðbrögð sem heyrðust frá Steinunni Valdísi (formanni Samgöngumálanefndar) og Árna Þór (í Samgöngumálanefnd) þegar þau voru spurð út í umdeilda lúxusgistingu á hóteli í Reykjavík.

-Þetta var eðlilegt.

Árni Þór er í stjórmálaflokki sem gerir sig út fyrir að vera með hreinar hendur í íslenskri pólitík og hefur oft og tíðum virkað sem ljósið í siðferðislegum álitamálum sem upp hafa komið. VG stóð t.d eitt á móti sablæstri REI og GGE. Svandís Svavarsdóttir var sú eina sem sá í gegnum plottið og tókst að forða OR frá því að lenda í höndunum á nokkrum ofurríkum einstaklingum. Hún hefur það sem er kallað á ensku "moral clarity". Því miður deilir Árni Þór þessum hæfileika ekki með Svandísi.

Segjum sem svo að Árni Þór þurfi að láta gera við þakið hjá sér. Hann kallar til pípara og smið til þess að taka út þakið. Iðnaðarmennirnir hittast, skoða þakið hjá Árna og fá sér síðan kvöldverð á lúxushóteli. Þeir gera gott betur og gista líka á þessu hóteli. Senda siðan Árna reikning fyrir herlegheitunum.

Þetta er nákvæmlega svona sem Samgöngumálanefnd hagaði sér. En Árna finnst þetta í lagi og borgar með bros á vör. Þetta er "eðlilegt" í huga Árna Þórs.

Það sem vekur forvitni mína er skoðun samherja Árna í VG um þessa lúxusgistingu. Þau hafa verið grunsamlega hljóð í þessu ógeðfelda máli. Minna hefur þurft til þess að setja flokkinn á annann endan þegar andstæðingar þeirra hafa ástundað sjálftöku.

0 comments: