
Mér blöskraði eins og fleirum við orð Árna Þórs Sigurðssonar í VG um að umdeild hótelgisting á lúxushóteli hafi verið "eðlileg".
Nú legg ég þann skilning í hugtakið "eðlilegt" að það innifeli einhvernvegin náttúrulega skipan hlutanna. Það er t.d eðlilegt að vatn leitar alltaf niður á við. Það er eðlilegt að lögreglumaður sé í lögreglubúningi. Hugakið er satt best að segja nokkur skýrt.
Það að Árni Þór telji "eðlilegt" að nefndarmenn í Samgöngumálanefnd gisti á lúxushóteli þótt þeir eigi allir heima í Reykjavík*, -er frekar hrollvekjandi
Þetta orðalag kemur nefnilega upp um þá staðreynd að Árna Þór þykir "eðlilegt" að hann og vinir hans gangi í skattfé landsmanna eins og þeim lystir.
Árna Þór þykir þessi sjálftaka, ekki orka tvímælis, ekki vera vafasöm, ekki vera hæpin á nokkurn hátt. Árna Þór þykir þessi sjálftaka "eðlileg". Hann deilir þessari sérkennlegu skoðun reyndar með fleira fólki sem vinnur fyrir hið opinbera því reynslan segir okkur að þetta sé hin almenna skoðun lykilfólks í opinberri stjórnsýslu.
Þeim þykir þetta eðlilegur hluti af starfinu sínu. Þeim þykir það í alvörunni og botna sennilega ekkert í gagnrýnisröddunum sem átelja þá. Það er svolítið sérkennlegt að setja sig í þessi spor að finnast "eðlilegt" að ástunda sjálftöku.
-en lengi má manninn reyna
*aðeins Herdísi Þórðardóttur býr fyrir utan höfðuborgarsvæðið en hún býr á Akranesi. Þó að hún sé sennilega sá sem mest þurfti gistingu þessa nótt, keyrir hún til og frá vinnu og er engin vorkun í því að keyra heim til sín að loknum vinnudegi.
Allir íslendingar gera það án þess að krefjast þess að vinnuveitandinn greiði fyrir sig nótt á lúxushóteli.
0 comments:
Sendu inn athugasemd