Við hjónin keyptum okkur ferlega flottan systkinavagn í gær. Risastór, léttur, praktískur og bara frábær. Hann er af tegundinni Chariot Carrier og kemur frá Kanada. Ástæðan fyrir því að við keyptum þennan vagn er sú að það er hægt að breyta honum í aftanívag fyrir reiðhjól. Nokkur handtök og maður þeysist um með strákana á hjóli. Þeir byrja nefnilega í leikskóla í næstu viku og þá er alveg beisikk að hjóla með þá. Vagninn var nokkuð dýr (7000 skr) en við seljum hinn systkinavagnin uppí. Ég hef reyndar aldrei séð eftir peningum sem vara í vandaðar vörur fyrir strákana. Stundum sparar maður bara á því að eyða aðeins meiri pening. Ég tók nokkrar myndir af vagninum þegar við vígðum hann.
0 comments:
Sendu inn athugasemd