EIMREIÐIN - veður í gegnum (moð)reykinn

mánudagur, 1. september 2008

Friðrik Weisshappel


Ég viðurkenni hér með að Friðrik Weisshappel fór alveg geðveikislega í taugarnar á mér.

-Þangað til ég kynntist honum.

Friðrik hefur mikla útgeislun og smitandi athafnaþrá. Hann verður eiginlega alltaf númeró uno hvar sem hann kemur. Þetta eiga sumir erfitt með að þola. Hann er ekkert sértaklega auðmjúkur gagnvart umhverfi sínu og virkar stundum á skjön einhvernvegin. Friðrik er prímadonna. En prímadonnustympillinn er ekki óverðskuldaður. Friðrik er alveg magnaður náungi.

Ég kynnitst Frikka á Skjaldborgarhátiðinni árið 2007 sem haldin er árleg á Patrekfirði. Þar áttum við skemmtilegar umræður um lífið, tilveruna, drauma og þrár. Fyrir mig var alveg frábært að skipta um skoðun á Weisshappel. Það var eiginlega léttir.

Friðrik er erkitýpa fyrir frumkvöðul. Hann er alltaf að hugsa um að breyta og bæta. Sér tækifæri þar sem aðrir sjá ekki neitt og hefur kjark til þess að deila hugmyndum sínum með öðrum og framkvæma. Friðrik er smekkmaður og er óhræddur við að sýna það. Enda eru það mannréttindi að vera eins manni langar til að vera. það eru mannréttindi að hafa skoðanir á ólíkustu hlutum. En það krefst kjarks.

Þegar við voru þarna á Patreksfirði þá kíktum við inn í yfirgefið hús sem stendur í miðjum bænum. Innan í húsinu var allt á rúi og stúi. Frikka setur hljóðan um stund. (sem er óvenjulegt) Hann grípur í eitthvað járnaruls og snýr því á hvolf. Reyndist þar vera komnar lappir undir stól. Því næst tekur hann upp það sem ég taldi vera bobbing sem hafið verið skorinn í tvennt, og setur ofan á stóllappirnar. Kemur þá ekki í ljós stólgarmur. En þetta var engin venjulegur stólgarmur. þetta mun hafa verið stóll eftir frægan danskan hönnuð. Ætlar þú að hirða hann? spurði ég Frikka. Nei. einhver annar verður að gera það. Svo fórum við á bíó.

Svona er Frikki. Sér tækifæri þar sem aðrir sjá ónýta bobbinga. Það kemur mér ekki á óvart að Frikki sé í framkvæmdaham þessa stundina.






















Myndin er fengin hjá http://www.flickr.com/photos/matthiasarni/
Sendo'num póst og fékk leyfi til að nota'na.. Takk Matthías. :)

0 Comments:

Sendu inn athugasemd

Subscribe to Post Comments [Atom]



<< Heim