föstudagur, 15. ágúst 2008

Ófullnægandi frétt.


Í nýlegri frétt um Ásrúnu Kristjánsdóttur borgarfulltrúa Framsóknarflokksins útskýrir hún frá því að frá samskipta erfiðleikum við Björn Inga Hrafnsson.

,,Björn Ingi kom ekki vel fram en ég vildi gefa honum möguleika," segir Ásrún sem að lokum sagði sig úr flokknum. ,,Hann kom í veg fyrir að ég gæti unnið að mínum málum en ég er hönnuður og myndlistarmaður og hef starfað sem slíkur í meiri en fimmtán ár."

Þarna vantar frekari upplýisngar. Hvaða aðferðum beitti Bingi til þess að Ásrún gæti ekki unnið að sínum málum. Á hún við að Bingi hefði staðið i vegi fyrir hennar pólitísku málum eða á hún við að Bingi hafi á einhvern hátt staðið í veg fyrir að hún gæti unnið að iðn sinni og list?

Er þetta bara klaufalega orðað hjá blaðamanni eða stóð Bingi í vegi fyrir því að þessi ágæta kona gæti stundað sína list?

-Þetta þarf að skýra betur.

0 comments: