Við fjöskyldan á Ormebacksgötunni ætum að vera um jólin á skíðum. Þetta er vinsælt skíðasvæði í Svíþjóð og hófsamt hvað brekkur varðar og verð á skíðeríinu. Það finnst mér amk. Nokkrir póstar hafa gengið á milli fjölskyldanna sem förum í þessa ferð eins og gengur.
Mér til mikils hryllings uppgötvaði ég að það birtist auglýsing á Gmailinu hjá mér (hægra megin í renningi) þar sem auglýst er "vintersport i Salen".
Augljóst er að Google er með forritsbút sem les bréfin manns (eftir e-m) lykilorðum og birtir auglýsingar í samræmi við innihald bréfsins. -Ég er alvarlega að spá í að skipta um póstforrit.
Hérna er skjáskot af þessari ófyrirleitnu auglýsingu. Ég strokaði yfir nöfn og þ.h í bréfinu enda kemur það ekki málinu við

3 comments:
Þetta hefur nú alltaf verið upp á yfirborðinu. Í notkunarskilmálunum stendur:
"The Gmail service includes relevant advertising and related links based on the IP address, content of messages and other information related to your use of Gmail."
Það hlaut að vera. Þetta er samt helvíti krípí.
Ég vil benda þér á að allar auglýsingarnar hægra megin tengjast efni bréfsins.
-Einkaþjálfarinn, íslensk auglýsing. Bréfið fjallar um skíðaferð, íþróttir á íslensku.
-Skíðaauglýsing.
-Barnaauglýsing, þú minnist tvisvar á eh tengt börnum.
Svo má ekki gleyma að CIA og sænska öryggislögreglan skoðar líka póstinn þinn.
Horfðu á björtu hliðarnar, að skrifa tölvupóst er atvinnuskapandi.
Sendu inn athugasemd