miðvikudagur, 27. ágúst 2008

Guðlaugur Þór er heiðarlegur.


Guðlaugur Þór Þórðarson heilbrigðismálaráðherra segist hafa endurgreitt umdeilda laxveiðiferð til Hauks Leóssonar fyrrverandi stjórnarformanns OR. Guðlaugur Þór snýr sér þannig á vissan hátt undan ábyrgð í þessu ljóta máli. Vissulega er það skárra en ekki að endurgreiða svona boðsferðir en eigi að síður er sá gerningur að þiggja slíka ferð ámælisverður.

Guðlaugur segir í frétt á Vísi orðrétt

",Ég setti það viðmið fyrir rúmlega 20 árum þegar ég byrjaði í stjórnmálum að þiggja aldrei boðsferðir frá fyrirtækjum og hef staðið við það og mun að sjálfsögðu gera það áfram," segir Guðlaugur og bætir að að hann hafi einungis verið að þiggja boð Hauks vinar síns þegar hann ákvað að fara með í ferðina"

Þessi afstaða Guðlaugs er til fyrirmyndar. Hann sér eins og flestir skattgreiðendur að boðsferðir æðstu yfirmanna opinberra stofnana er afar hæpnar (svo ekki sé tekið dýpra í árinni).

Það kemur því ferlega á óvart að Guðlaugur neitar að sýna fram á að hann hafi í raun og veru endurgreitt téða laxveiðiferð í boði Baugs! Þetta sætir undrun. Guðlaugur segist standa fyrir heiðarleika og gegnsýni (sbr orð hans hér að ofan) og ætti þvi að taka því fagnandi að sýna það svart á hvítu að hann er maður orða sinna og slíkur prinsippmaður sem hann segir sig vera.

Guðlaugur segst ekki vita "hversu langt maður eigi að opna heimilisbókhaldið" í því að sýna fram á eigin heiðarleika. Hann segir ennfremur að hann taki ekki við kvittunum frá vinum sínum þegar þeir eigi í viðskiptum (með laxveiðiferð í þessu tilfelli). Ef að Guðlaugur á heimabanka þá tekur það um 20 sekundur að prenta út millifærsluna til Hauks Leóssonar.

Með því móti getur Guðlaugur Þór hreinsað nafn sitt af þessum ávirðingum. -Hann kýs samt að gera það ekki!.

Hugsanlega notar Guðlaugur Þór ekki heimabanka og notar bara reiðufé. Hann hefur því greitt Hauki Leóssyni fyrir laxveiðiferðina í sæmilega þykku umslagi!.

-Frekar grunsamlegt satt best að segja.

Einsýnt er að á meðan Guðlaugur Þór sýnir ekki með óyggjandi hætti að hann hafi endurgreitt Hauki Leóssyni þessa laxveiðiferð, er Guðlaugur að ljúga.

0 comments: