fimmtudagur, 28. ágúst 2008

Gull á Óheiðarleikunum í Peking

Fær Guðlaugur Þór sem hefur gefið út digurbarkalegar yfirlýsingar um að hann hafi alltaf endurgreitt boðsferðir í laxveiði.

Samt neitar hann að sýna fram á að hann hafi hafi endurgreitt Hauki Leóssyni umdeilda laxveiðiferð.

Ef að Guðlaugur Þór væri sá heiðarleika-hnakki sem hann gefur sig út fyrir að vera, ætti hann að fagna því að sýna fram á það svart á hvítu.

Því miður lítur allt út fyrir að yfirlýsingar Guðlaugs um eigin heiðarleika séu orðum auknar. Súrari lygarar eru vandfundir en þeir sem stæra sig af dygðum hverskonar en brjóta gegn þessum sömu dyggðum í sömu andrá.

Ef það keppt væri í lygi á óheiðarleikunum í Peking , væri Guðlaugur ekki silfurverðlaunahafi.

-Hann fengi gullið.

0 comments: