Nýjustu tillögur Guðna Ágústsonar í efnahagsmálum eru all í senn broslegar og hrollvekjandi. Broslegar af því hver kjánalegar þær eru og úr tengslum við veruleikann og hrollvekjandi að formaður stjórmálaflokks skuli setja þær fram í alvöru. En hverjar eru þessar broslegu en jafnframt hrollvekjandi tilögur? Jú Guðni Ágúststsson formaður Framsóknarflokksins vill "skipta upp íslenskum bönkum" !
Guðni er s.s að koma með tillögu að þjóðnýta bankana. Hvernig skyldi það svo vera framkvæmt? Jú það er hægt að kaupa hlutabréf í bönkunum og ná eignarhaldið þannig eða setja lög þannig að ríkið geti hirt bankana. Hugo Chavez einræðisherra í Venesúela er iðinn við þetta þessa daganna en það er önnur saga og dapurlegri.
Ásætður þessara þjóðnýtingarhugmynda er að bankarnir munu hafa "farið offari". Samkvæmt þessu má þjóðnýta öll fyrirtæki sem hafa farið "offari". Þjóðnýta fjárfestingafélög, þjóðnýta veitingahús (sem hafa farið "offari") og beinlínis þjóðnýta allan þann rekstur sem að mati Guðna Ágústssonar hefur farið "offari".
Má ekki segja að landbúnaðurinn allur hafi farið "offari" því mér skilst að landbúnaður sé meira og minna á hausnum?
Það hefur sjálfsagt farið framhjá Guðna að í heiminum ríkir bankakreppa sem á rætur til ódýrra húsnæðislána í Bandaríkjunum. Vandræði íslensku bankanna er EKKI sér íslenkskt vandamál. Lausn Guðna á þessari kreppu er svo kjánaleg að öllum meðalsnotrum almenningi fallast hendur.
Sú staðreynd að kjáni stýrir Framsóknarflokknum hefur líka tvær hliðar rétt eins og tillaga Guðna um lausnina á lausafjárkreppunni í heiminum. Tillagan sýnir að Framsóknarflokknum er stýrt af kjána en á hinn veginn er það bara hið besta mál. Það verður gaman að sjá úrslitin úr næstu þingkosningum því ljóst er að flokki sem stýrt er af kjána fær ekki mörg atkvæði.
-0-0-0-0-0-
í lokin og þessu ótengt þá hvet ég lesendur til að kynna sér "leiðréttingar" Guðna á eigin orðum úr ræðustól Alþingis. Hann viðurkennir að hafa "leiðrétt" eigin orð og fegrað þau sér til vegsemdarauka.
0 comments:
Sendu inn athugasemd