
Sá mun hafa verið fengin til að redda ímyndarmálum borgarstjórnarmeirihlutanum. Það er vel og engum er betur treystandi til þess að vinna þvílíkt grettistak og Gunnari Smára. Hann er hamhleypa til verka og sennilega eini maðurinn í heiminum sem gæti blásið lífi í kulnaðar vinsældaglóðir meirihlutans.
Ég vildi samt sjá Gunnar Smára í öðru hlutverki þarna. Ég vildi gjarnan sjá hann sem borgarstjóra. það yrði algert "thunder". Gunnar er skarpasti hnífurinn í skúffu íslenkskra blaðamanna og frábær samfélagsrýnir. Ég sakna Gunnars Smára sem ritstjóra á einhverju blaðinu. Gunnar hefur innsýn inn í samfélagsmálin sem flestir hafa ekki.
-Hann yrði ugglaust frábær borgarstjóri.
1 comments:
Get tekið undir hvert orð hjá þér. þar að auki er'ann einhver besti rekstrarmaður sem við eigum og verður allt að gulli sem sem hann snertir. Það er kannski helst hægt að bera hann saman við Hannes Smárason í því sambandi.
kv. Magnús
Sendu inn athugasemd