þriðjudagur, 19. ágúst 2008

Hræsni

Fréttaflutningur af innrás Rússa inn í Georgíu er með eindæmum. Allir virðast hafa gleymt að það var fávís forseti Georgíu sem ruddist með her inn í afar umdeilt landssvæði þar sem 90% íbúanna eru Ossetar með rússnesk vegabréf. Ekki nóg með að Georgíuher ruddist inn með ofbeldi þá drap hann 10 rússneksa friðargæsluliða og drápu um 2000 Osseta þar með talin konur og börn. Héldu þeir virkilega að Rússar myndu horfa framhjá þessu!

Þetta er álíka og ef Serbar hefðu ráðist inn í Kosovo með alvæpni, dræpu 10 Bandaríska friðargæsluliða og fremdu óhuggulega stríðsglæpi.

Vestrænir fjölmiðlar ná ekki upp í nasir sér af hneykslan yfir innrásinni. Auðvitað eru Rússar grimmir, vitlausir og óvægnir. Þeir skera sig reyndar ekki á neinn hátt frá öðrum herjum hvað það varðar. Stríð kallar fram það versta í mönnum.

Vonandi lýkur þessu ógeði sem fyrst. Tapararnir í mínum huga eru vestrænir fjölmiðlar. það er ekkert að marka þetta rugl sem þeir skrifa.

Hérna er frétt um stríðið á upphafstdögum þess.

1 comments:

Jón Valur Jensson sagði...

Þarftu ekki að líta til þessa, Teitur:
"The United Nations, European Union, Organization for Security and Cooperation in Europe (OSCE), Council of the European Union, North Atlantic Treaty Organization (NATO) and all other countries in the world recognize South Ossetia as part of Georgia" (http://en.wikipedia.org/wiki/South_Ossetia)?

Þú segir hér: "Það var fávís forseti Georgíu sem ruddist með her inn í afar umdeilt landssvæði þar sem 90% íbúanna eru Ossetar með rússnesk vegabréf."
Tvö meginspurnarefni vakna: 1) Var eðlilegt af Rússum að gefa út rússnesk vegabréf til fólks í öðru landi? Væri rétt af Svíum að gefa út sænsk vegabréf til sænskumælandi Finna, sem ynnu að stofnun sjálfstæðs ríkis þar, og bjóða þeim að gera það að verndarríki/ leppríki Svíþjóðar? Væri það eðlileg framkoma í alþjóðamálum?
2) Hvar fréttirðu þessa "90%" tölu? Ég bendi þér á þessa heimild: http://julli.blog.is/blog/julli/entry/617112/ -- þar segir: "Til að byrja með, þá vil ég benda á að í S. Ossetíu fyrir 1989 voru um 1/3 íbúa Georgíumenn. Eða 28.700 manns. Eftir uppreisnina 1991-1992 flúðu um 11.000 af þeim af svæðinu og hafa ekki getað snúið til baka. Eftir voru því 17.500 Georgíumenn í S. Ossetíu, en þurfa að yfirgefa heimil sín eftir þessi átök, ef S. Ossetía á að fá sjálfstæði. (Sem Rússar munu aldrei samþykkja). Í raun þurfa þeir alltaf að flýja, því þeim verður ólíft eftir átökin sem urðu þarna. Eftir verða því um 45.000 Ossetíubúar. Svipað margir og íbúar Færeyja." (Júlíus Sigurþórsson, sbr. hér: http://en.wikipedia.org/wiki/South_Ossetia -- demographics ; þar segir og: "By August 2008 more than 70% of the South Ossetia citizens had Russian citizenship.")

17.500+45.000 = 62.500. Þar af 17.500 menn af georgísku þjóðerni = 28%. Eftir eru í mesta lagi 72% Ossetar, en raunar voru menn af öðru þjóðerni taldir 4,8% 1989, þannig að Ossetar eru um 2/3 íbúa þar við upphaf stríðsins.

Þú talar um 10 rússneska friðargæsluliða sem Georgíumenn hafi drepið, en (1) gleymir að geta um lögreglumennina 8 sem Ossetar drápu og (2) ættir að líta til þess sem Júlíus segir um óvenjuhart viðnám af hálfu þessara rússnesku friðargæzluliða sem líklega voru í beinu sambandi við Rússaher og vissu að hann var á leiðinni. S-Ossetía er í Georgíu, ekki í Rússlandi, þannig að þjóðarétturinn til íhlutunar er miklu sterkari Georgíumegin.

Hver er svo heimild þín fyrir því, að Georgíumenn "drápu um 2000 Osseta þar með talin konur og börn"? Aðskilnaðarhreyfing Osseta, TASS eða Novosti?