mánudagur, 25. ágúst 2008

Klósettraunir og leikskóli

Ég losaði stýfluna klukkan 12 í dag. Skrúfaði Gústafsberginn frá gólfinu og losaði það sem fyrir var. Því miður var það ekki bara legókubbar heldur líka tannbursti og kremtúba. Og nokkrir metrar af klósettpappír. Úff!

Kannski gerist ég klósettkafari hérna í Swe. -Losa stýflur fyrir fyrir Svía?

Ég þreif mig síðan hátt og lágt og skúraði gólfið á salerninu. Síðan náði ég í strákana í leikskólann. Fyrsti dagurinn þeirra gekk vonum framar. Þeir átu á við 4 sænksa og það er vel.

Núna bíðum við eftir Ingunni.

0 comments: